Intra ver þig gegn DNS-fikti, en það er netárás sem er notuð til að loka á aðgang að fréttavefsvæðum, samfélagsmiðlum og skilaboðaforritum.
01
Opnari internetaðgangur
Intra veitir þér aðgang að vefsvæðum og forritum sem hefur verið lokað á með DNS-fikti sem er ein algengasta tegund ritskoðunar á netinu.
02
Vernd gegn stafrænum árásum
Intra ver þig gegn vefveiðum og spilliforritum. Slíkar árásir eru notaðar til að stela persónuupplýsingum á borð við notandanöfn og aðgangsorð eða til að setja upp hugbúnað í tækinu þínu með því að framsenda þig á fölsk vefsvæði.
03
Ótakmörkuð vernd með einum smelli.
Intra gæti ekki verið einfaldara – þú kveikir bara á því og þarft ekki að spá í það meir. Intra hægir ekki á nettengingunni og engin takmörk eru á gagnanotkun.
04
Tækni sem þú getur treyst
Intra heldur upplýsingunum þínum lokuðum. Við rekjum hvorki forritin sem þú notar né vefsvæðin sem þú opnar.
Intra gerir þér kleift að sérsníða DNS-þjóninn þinn. Þú getur notað eigin þjón eða valið úr vinsælum þjónum á borð við Cloudflare eða Google.
Svona virkar þetta
Intra dulkóðar nettenginguna þína á opnum DNS-þjóni (nafnakerfi léna (DNS)). DNS-þjónar virka eins og tengiliðalisti – þegar þú notar netið veitir DNS-þjónninn nákvæmlega þau vefföng sem þú þarft til að opna vefsvæði eða forrit.
Það er þó hægt að eiga við DNS-þjóna til að loka á aðgang eða beina þér á fölsk vefsvæði. Með því að dulkóða tengingu þína við DNS-þjóna í Android-tækinu hjálpar Intra til við að tryggja að ekki sé hægt að eiga við niðurstöðurnar svo þú getir notað netið af öryggi.